Sálmabók

422. Nú dagur þver og nálgast nótt

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Nú dagur þver og nálgast nótt til náða sem að kveður drótt, ó, faðir ljóss og alls sem er, gef öllum frið og hvíld í þér. 2 Ó, Guð, sem skjaldarskuggi þinn oss skýli myrkrið nú um sinn, gef þessi nótt oss verði vær, eins vorum bræðrum nær og fjær. 3 Með föðurhendi byrg oss brár og blítt við næsta morgunsár með endurhresstan þrótt og þrek sem þín og ljóssins börn oss vek.


T Steingrímur Thorsteinsson – Sb. 1886
L Thomas Tallis 1561 – Sb. 1997
TALLIS' CANON

Eldra númer 470
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction