Sálmabók

414. Nú hverfur sól í haf

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Nú hverfur sól í haf og húmið kemur skjótt. Ég lofa góðan Guð sem gefur dag og nótt, minn vökudag, minn draum og nótt. 2 Þú vakir, faðir vor, ó, vernda börnin þín svo víð sem veröld er og vonarstjarna skín, ein stjarna hljóð á himni skín. 3 Lát daga nú í nótt af nýrri von og trú í myrkri hels og harms og hvar sem gleymist þú á jörð sem átt og elskar þú. 4 Kom, nótt, með náð og frið, kom nær, minn faðir hár, og leggðu lyfstein þinn við lífsins mein og sár, allt mannsins böl, hvert brot og sár.


T Sigurbjörn Einarsson 1983 – Vb. 1991
L Þorkell Sigurbjörnsson 1983 – Vb. 1991

Eldra númer 592
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction