Sálmabók

405. Segðu hvern morgun svo við mig

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Segðu hvern morgun svo við mig, sæti Jesú, þess beiði' eg þig: Í dag þitt hold í heimi er, hjartað skal vera þó hjá mér. 2 Í dag, hvern morgun eg svo bið, aldrei lát mig þig skiljast við, sálin, hugur og hjartað mitt hugsi og stundi' á ríkið þitt. 3 Eins þá kemur mín andlátstíð orðin lát mig þau heyra blíð: Í dag, seg þú, skal sálin þín sannlega koma' í dýrð til mín.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 40
L Einsiedeln 12. öld – Antiphonale Romanum – Sb. 1997
Iam lucis orto sidere

Eldra númer 449
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction