Sálmabók

401. Til himins upp þig hef, mín sál

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Til himins upp þig hef, mín sál, til himins fljúgi lofgjörð þín. Upp, upp, mitt hjarta, hugur, mál, með helgum söng því dagur skín. 2 Ó, Drottinn, náð þín dásöm er, ó, Drottinn, hjartans athvarf mitt, þú væran blund enn veittir mér og vaktir enn þá barnið þitt. 3 Því skal, ó, Drottinn, dýrð þér tjá í dag og jafnan sála mín, þig lofi allt er anda má og allt er blessar gæska þín. 4 Af öllu hjarta eg þig bið: Æ, annast þú mig nú í dag, af elsku þinni legg mér lið og lát mér snúast allt í hag. 5 En ef þú sendir mæðu mér svo mín af harmi stynur önd gef mér þá eins að þakka þér og þína blessa föðurhönd. 6 Æ, hjálpa þú mér, Herra minn, svo helgi' eg gjörvallt líf mitt þér. Mig ætíð styrki andi þinn og allt sem gott er kenni mér. 7 Ég fel mig nú í faðminn þinn, ég fel þér bæði líf og sál. Æ, lát þér þóknast lofsöng minn, þig lofi hjarta, raust og mál.


T Páll Jónsson – Sb. 1886
L Kempten um 1000 – Erfurt 1524 – Sb. 1589 – Weyse 1840 – PG 1861
(Komm, Gott Schöpfer, Heiliger Geist) / Kom, skapari, heilagi andi

Eldra númer 456
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction