Sálmabók

399. Roðinn af morgni rís í austurvegi

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Roðinn af morgni rís í austurvegi, rýmir í hljóði nóttin fyrir degi. Risin af beði Guð með þökk og gleði göfgum og biðjum. 2 Bænin skal vekja vora sál og hjarta, vermir og lýsir orðið Drottins bjarta. Yfir oss niður ljós og líf og friður líður af hæðum. 3 Dýrð sé þér, faðir, Drottinn geims og stjarna, dýrð þér, Guðs sonur, lausn vor, sekra barna, dýrð þér sem talar, helgar, huga svalar, heilagi andi.


T Latn. hymni frá 8. öld – Carl O. Mannström 1928 – Sigurbjörn Einarsson, 1996 – Vb. 2013
Morgonens rodnad över bergen brinner
L Paris Antiphoner 1681 – Vb. 2013
CHRISTE SANCTORUM

Eldra númer 932
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction