Sálmabók

398. Guðs föður dýrðar dásöm mynd

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Guðs föður dýrðar dásöm mynd, dagsins eilífa heilög lind, alheimsins ljós og líf og von, lof sé þér, Guðs og mannsins son. 2 Sól þinnar náðar helg og hlý heilsar oss alla morgna ný. Hjartað vakni og heilsi þér, hylli þitt sanna ljós sem ber. 3 Renni oss upp þín sannleikssól, sigri hún það sem myrkrið ól, lát guðdómsanda geislann þinn greiða þér veg í hjörtun inn. 4 Morgunn af þinni miskunn skín, myrkrin öll sigrar gæskan þín, lúti vor sála sigri þeim, sjái og boði ljóssins heim. 5 Þú ert vor dagur, vernd og vörn, varðveit í trúnni öll þín börn. Veit oss að bera vitni þér, vera þér trú á jörðu hér. 6 Dagurinn fagur fari' um heim, finni vor sál þinn tæra hreim í gegnum alla hljóma hans með helgri þökk til skaparans. 7 Lind allrar náðar, lífsins brauð, líknin í hverri þraut og nauð, alvaldi Drottinn, einum þér eilíf vegsemd og lotning ber.


T Aurelius Ambrosius? – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson, 2008 – Vb. 2013
Splendor Paternae gloriae
L Einsiedeln 12. öld – Antiphonale Romanum – Sb. 1997
Iam lucis orto sidere

Eldra númer 929
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction