Sálmabók

390. Líður að dögun

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Líður að dögun, léttir af þoku, ljóðin sín kveða fuglar af snilld. Sönginn og daginn, Drottinn, ég þakka, dýrlegt er orð þitt, lind sönn og mild. 2 Verðandi morgunn, vindur og sunna. Vanga minn strýkur náðin þín blíð. Grasið og fjöllin, Guð minn, ég þakka, geislar þín sköpun, nú er mín tíð. 3 Risinn til lífsins lausnarinn Jesús leið þinni beinir hvert sem ég fer. Indæl er jörðin, eilíf er vonin, allt skal að nýju fæðast í þér.


T Eleanor Farjeon 1931 – Sigríður Guðmarsdóttir 1997 – Sb. 1997
Morning has broken
L Gelískt þjóðlag – Sb. 1997
BUNESSAN

Eldra númer 703
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction