Sálmabók

378. Þar sem englarnir syngja sefur þú

Guðsþjónustan - Andlát og útför

hymn noteshymn notes
1 Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta, skæra :,: veki þig með sól að morgni. :,: 2 Drottinn, minn faðir, lífsins ljós, lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós, tak burt minn myrka kvíða. :,: Þú vekur hann með sól að morgni. :,: 3 Faðir minn, láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta :,: vekja hann með sól að morgni. :,: 4 Drottinn minn, réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál, slít sundur dauðans bönd. :,: Svo vaknar hann með sól að morgni. :,: 5 Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. :,: Svo vöknum við með sól að morgni. :,:


T Bubbi Morthens (Ásbjörn K. Morthens) 2002
L Bubbi Morthens (Ásbjörn K. Morthens) 2002

Uppáhalds sálmar

Under Construction