Sálmabók

377. Þung er mín sorg og sár

Guðsþjónustan - Andlát og útför

hymn notes
1 Þung er mín sorg og sár, svartnætti eitt. Titra á vanga tár, tilveran breytt. Geymi þig Guð minn nú, gefi mér styrk og trú, gefi mér trú. 2 Styðji Guðs sonur mig sorginni frá. Faðmar þig faðirinn, friður á brá. Geymi þig Guð ... 3 Ljúfur er lausnarinn, leiðir hann mig. Hrópaðu’ á Herra þinn, hann skilur þig. Geymi þig Guð ... 4 Sannan þú finnur frið föðurnum hjá. Himnanna opnast hlið, hvíld muntu fá. Geymi þig Guð …


T Hjördís Björg Kristinsdóttir 2005
L Jónas Þórir Þórisson 2020

Uppáhalds sálmar

Under Construction