Sálmabók

376. Jarðvist á enda

Guðsþjónustan - Andlát og útför

hymn notes
1 Jarðvist á enda, lífsgöngu lokið, ljósið þitt slokknað, fölnuð brá. Virðing og þökk, vegferðin öll vel í huga geymd. 2 Hljóðnuð er röddin, hæglátur blærinn, helguð þín brottför Drottins náð. Virðing og þökk ... 3 Syrgjendur kveðja, söknuðinn finna, sárasta harminn, tregans tár. Virðing og þökk ... 4 Faðmi þig ljósið, friðarins engill fylgi þér nú á æðra stig. Virðing og þökk ...


T Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2010 – Vb. 2013
L Sigurður Flosason 2010 – Vb. 2013

Eldra númer 899
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction