Sálmabók

375. Hin langa þraut er liðin

Guðsþjónustan - Andlát og útför

hymn notes
1 Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. 2 Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja en það er Guðs að vilja og gott er allt sem Guði' er frá. 3 Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Heinrich Isaac um 1495 – Nürnberg 1539 – PG 1861
Innsbruck, ich muss dich lassen / Nun ruhen alle Wälder

Eldra númer 270
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction