Sálmabók

374. Þótt líkaminn falli að foldu

Guðsþjónustan - Andlát og útför

hymn notes
1 Þótt líkaminn falli að foldu og felist sem stráið í moldu, þá megnar Guðs miskunnarkraftur af moldum að vekja hann aftur. 2 Í jörðinni sáðkornið sefur uns sumarið ylinn því gefur. Eins Drottinn til dýrðar upp vekur það duft sem hér gröfin við tekur. 3 Sá andi sem áður þar gisti frá eilífum frelsara, Kristi, mun, leystur úr læðingi, bíða þess líkams sem englarnir skrýða. 4 Og brátt mun sá konungur kalla sem kemur að fylla von alla. Hann græðir á fegurri foldu þau fræ er hann sáði í moldu.


T Aurelius C. Prudentius um 400 – Sb. 1589 – Gr. 1691 – Magnús Stephensen – Sb. 1801 – Stefán Thorarensen – Sb. 1871 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
Jam moesta quiesce querela
L Sigurður Sævarsson 2017

Eldra númer 274
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction