Sálmabók

373a. Allt eins og blómstrið eina

Guðsþjónustan - Andlát og útför

hymn notes
1 Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði – líf mannlegt endar skjótt. 2 Svo hleypur æskan unga óvissa dauðans leið sem aldur og ellin þunga, allt rennur sama skeið. Innsigli engir fengu upp á lífsstunda bið en þann kost undir gengu allir að skilja við. 3 Dauðinn má svo með sanni samlíkjast, þykir mér, slyngum þeim sláttumanni er slær allt hvað fyrir er: grösin og jurtir grænar, glóandi blómstrið frítt, reyr, stör sem rósir vænar reiknar hann jafn fánýtt. 4 Lífið manns hratt fram hleypur, hafandi enga bið, í dauðans grimmar greipur, gröfin tekur þá við. Allrar veraldar vegur víkur að sama punkt, fetar þann fús sem tregur hvort fellur létt eða þungt. 5 Hvorki fyrir' hefð né valdi hopar dauðinn eitt strik, fæst síst með fögru gjaldi frestur um augnablik, allt hann að einu gildir þótt illa líki' eða vel, bón ei né bræði mildir hans beiska heiftarþel. 6 Menn vaða' í villu og svíma, veit enginn neitt um það hvernig, á hverjum tíma eða hvar hann kemur að. Einn vegur öllum greiðir inngang í heimsins rann, margbreyttar líst mér leiðir liggi þó út þaðan. 7 Afl dauðans eins nam krenkja alla í veröld hér. Skal ég þá þurfa´ að þenkja hann þyrmi einum mér? Adams er eðli runnið í mitt náttúrlegt hold, ég hef þar og til unnið aftur að verða mold. 8 Hvorki með hefð né ráni hér þetta líf ég fann, sálin er svo sem að láni samtengd við líkamann. Í Herrans höndum stendur að heimta sitt af mér, dauðinn má segjast sendur að sækja hvað skaparans er. 9 Nú vel, í Herrans nafni fyrst nauðsyn ber til slík, ég er ei þeirra jafni sem jörðin geymir nú lík. Hvenær sem kallið kemur kaupir sig enginn frí, þar læt ég nótt sem nemur, neitt skal ei kvíða því. 10 Ég veit minn ljúfur lifir lausnarinn himnum á, hann ræður öllu yfir, einn heitir Jesús sá, sigrarinn dauðans sanni sjálfur á krossi dó og mér svo aumum manni eilíft líf víst til bjó. 11 Með sínum dauða' hann deyddi dauðann og sigur vann, makt hans og afli eyddi, ekkert mig skaða kann, þó leggist lík í jörðu lifir mín sála frí, hún mætir aldrei hörðu himneskri sælu í. 12 Jesús er mér í minni, mig á hans vald ég gef hvort ég er úti' eða inni, eins þá ég vaki' og sef. Hann er mín hjálp og hreysti, hann er mitt rétta líf, honum af hjarta' eg treysti, hann mýkir dauðans kíf. 13 Ég lifi' í Jesú nafni, í Jesú nafni' eg dey, þó heilsa' og líf mér hafni hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti' eg segi: Kom þú sæll þá þú vilt.


T Hallgrímur Pétursson 1661 – Sb. 1671
Som fagre blomen ydder
L Antwerpen 1540 – Thomissøn 1569 – Sb. 1589
Det dages nu i Østen

Eldra númer 273
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction