Sálmabók

371. Guð, sem leggur lífsins huldu brautir

Guðsþjónustan - Hjónavígsla

hymn notes
1 Guð, sem leggur lífsins huldu brautir, lætur ást og drauma tveggja mætast, gjör þau eitt í trú og von og vilja, veit þeim náð að láta heit sín rætast. 2 Verið, brúðhjón, vígð til lífs með Kristi, vakið, biðjið, fylgið, treystið honum, verði allt sem annað hinu gefur uppfylling á hans og ykkar vonum. 3 Látið hendur hlýna við hans loga, hug og augu spegla ljós hans anda svo þið verðið gleði Guðs hvort öðru, gjöf sem blessar hamingju og vanda. 4 Dýrð sé þér í dag og allar stundir, Drottinn, faðir, sonur, helgur andi. Heyr þá bæn að börn þín saman verði blessun sér og gæfa þjóð og landi.


T Sigurbjörn Einarsson 1985 – Vb. 1991
Faðir vor þín eilíf elska vakir
L Þorkell Sigurbjörnsson 1985 – Vb. 1991
Faðir vor þín eilíf elska vakir

Eldra númer 590
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction