Sálmabók

368. Sólin brennir nóttina

Guðsþjónustan - Hjónavígsla

hymn noteshymn notes
1 Sólin brennir nóttina og nóttin slökkvir dag; þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag. 2 Þú ert yndi mitt áður og eftir að dagur rís, svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís. 3 Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt, þögn í seiðandi solli og söngur ef allt er hljótt. 4 Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn, þú gafst mér jörðina og grasið og Guð á himnum að vin. 5 Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð til að styrkja mig. Ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig. 6 Ég fæddist til ljóssins og lífsins er lærði eg að unna þér og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfum mér. 7 Ást mín fær aldrei fölnað því eilíft líf mér hún gaf. Aldirnar hrynja sem öldur um endalaust tímans haf. 8 Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið; það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin, Guð – og við. Þú gafst mér skýin ...


T Sigurður Nordal 1917
L Magnús Þór Sigmundsson 2003

Uppáhalds sálmar

Under Construction