Sálmabók

367. Vor Guð, í Jesú nafni nú

Guðsþjónustan - Hjónavígsla

hymn notes
1 Vor Guð, í Jesú nafni nú hér nálgast þig í von og trú þín börn á brúðkaupsdegi. Ó, heyr þau biðja bljúg um náð og blessun þína' og hjálparráð og leiðsögn lífs á vegi. Faðir, faðir, vík ei frá þeim, ver þú hjá þeim, veit þau finni gleði' og frið í gæslu þinni. 2 Lát hjúskap þeirra helgast þér, í hjörtum þeirra máttkur ver með þínum ástaranda, lát sálir þeirra samtengjast í sönnum hjónakærleik fast og heitorð stöðug standa. Faðir, faðir, veg þinn fetað veit þeim geta, veit þau unni heitt þér æ af hjartans grunni.


T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Philipp Nicolai 1599 – Sb. 1619
Wie schön leuchtet der Morgenstern

Eldra númer 263
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction