Sálmabók

366a. Hve gott og fagurt og indælt er

Guðsþjónustan - Hjónavígsla

hymn notes
1 Hve gott og fagurt og indælt er með ástvin kærum á samleið vera! Þá gleði tvöfalda lánið lér og léttbært verður hvern harm að bera. Já, það er kætir :,: oss best og bætir :,: hvert böl sem mætir :,: er einlæg ást. :,: 2 Hve gott að treysta þeim ástvin er sem engu barnanna sinna gleymir. Hann man oss einnig er eldumst vér því ávallt lindin hans kærleiks streymir. Já, það er kætir :,: oss best og bætir :,: hvert böl sem mætir :,: er trúin traust. :,:


T Nikolaj F.S. Grundtvig 1855 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Det er så yndigt at følges ad for to
L Christoph E.F. Weyse 1833 – JH 1885
Det er så yndigt at følges ad for to

Eldra númer 717
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction