Sálmabók

365a. Ó, himnafaðir, hjá oss ver

Guðsþjónustan - Hjónavígsla

hymn notes
1 Ó, himnafaðir, hjá oss ver og hjónin ungu tak að þér er vinna glöð sín heilög heit, þeim hjálp og styrk og gæfu veit. 2 Hér tengjast sálir, hendi hönd, ó, helga þeirra tryggðabönd. Gef þeim að starfa´ í elsku eitt, þú einn þá blessun getur veitt. 3 Og bústað þeirra blessa þú, ó, besti faðir, auk þeim trú. Þinn andi vaki yfir þeim um alla tíma´ og leiði heim. 4 Og þú sem átt á öllu ráð og ómælt veitir þína náð, lát helgast sérhvert hjónaband til heilla fyrir þjóð og land.


T Johan L. Runeberg, 1857 – Sigurjón Guðjónsson – Sb. 1972
Gud se i nåd til dessa två
L Steingrímur Þórhallsson 2012

Eldra númer 262
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction