Sálmabók

363. Guð, vor góði faðir

Guðsþjónustan - Ferming

hymn notes
1 Guð, vor góði faðir, geymdu börnin þín, lát í hjarta lifa ljósið sem þar skín. Ávöxt orða þinna, andans helga sáð, vernda þú og veittu vöxt af þinni náð. 2 Jesús, heimsins hirðir, hefur sjálfur lagt börnin þér að barmi, blessað þau og sagt: Skrúði minnar skírnar skýli þinni sál, helgi hjartans rætur, hugsun, verk og mál. 3 Enn þú börnin blessar, biður fyrir þeim, þú sem átt og þekkir þennan stóra heim. Hugur vor og vilji verða skammvinn hlíf, elska þín er eilíft athvarf, skjól og líf. 4 Sælt er þig að þekkja, þína birtu sjá yfir öllum vegum, allt þér mega tjá, allan ugg og kvíða, óskir, þrá og von, fá þinn frið að reyna, fylgja þér, Guðs son.


T Sigurbjörn Einarsson 1988 – Vb. 1991
L Franz Schubert 1826 – Vb. 1991
Heilig, heilig, heilig

Eldra númer 588
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction