Sálmabók

361. Guð leiði þig, mitt ljúfa barn

Guðsþjónustan - Ferming

hymn notes
1 Guð leiði þig, mitt ljúfa barn, þú leggur út á mikið hjarn með brjóstið veikt og hýrt og hlýtt og hyggur lífið sé svo blítt. Guð leiði þig. 2 Guð leiði þig en líkni mér sem lengur má ei fylgja þér. En eg vil fá þér englavörð, míns innsta hjarta bænargjörð: Guð leiði þig. 3 Guð verndi þig. En vak og bið og varðveit, barn, þinn sálarfrið. Á Herrans traustu hönd þig fel. Ef hann er með, þá farnast vel. Guð leiði þig. 4 Guð leiði þig. Hans lífsins vald á lög og jörð og himintjald, hans auga sér, hans armur nær um allan geiminn nær og fjær. Guð leiði þig.


T Karl Gerok, 1862 – Matthías Jochumsson, 1877 – Sb. 1945
Behüt dich Gott, geliebtes Kind
L Jórunn Viðar – Vb. 1976
Guð leiði þig, mitt ljúfa barn

Eldra númer 257
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction