Sálmabók

358. Lát þennan dag

Guðsþjónustan - Ferming

hymn notes
1 Lát þennan dag, vor Drottinn, nú oss dýran ávöxt færa. Ó, besti faðir, blessa þú vorn barnahópinn kæra. Nú frammi fyrir þér, vor faðir, stöndum vér, þín eldri' og yngri börn, þín elska líknargjörn vor hjörtu virðist hræra. 2 Og hversu langt sem lætur þú þau lífsins strauma bera lát helga skírn og hreina trú þeim hjartans akker vera. Ó, hversu sæll er sá er segja' í trúnni má: Minn Guð ei gleymir mér, minn Guð mér faðir er, mig hann mun hólpinn gera.


T Johan N. Brun 1786 – Valdimar Briem – Sb. 1886
Lad denne dag, o Gud, vor Gud
L Martin Luther, 1529 – Klug 1533 – Gr. 1594
Ein feste Burg ist unser Gott

Eldra númer 256
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction