Sálmabók

357. Ó, blíði Jesú, blessa þú

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Ó, blíði Jesú, blessa þú það barn er vér þér færum nú, tak það í faðm og blítt það ber með börnum Guðs á örmum þér. 2 Ef á því hér að auðnast líf því undir þínum vængjum hlíf og engla þinna láttu lið það leiða' og gæta slysum við. 3 Ó, gef það vaxi' í visku' og náð og verði þitt í lengd og bráð og lifi svo í heimi hér að himna fái dýrð með þér.


T Ólafur Guðmundsson – Sb. 1589 – Valdimar Briem – Sb. 1886
L Carl C.N. Balle 1850 – BÞ 1903
Det kimer nu til julefest

Eldra númer 252
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction