Sálmabók

356a. Til þín ég leita

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Til þín ég leita, lausnarinn minn góði, sem leystir mig með þínu hjartablóði og mínar syndir vildir burtu bera svo barn þitt ég um eilífð mætti vera. 2 Nú ber ég lítið barn að fótskör þinni að blessun þína lífið unga finni og vaxi svo að visku' og kærleik sönnum í von og trú og náð hjá Guði' og mönnum. 3 Ó, leið það fram hjá lífsins villuflaumi og ljá því vernd í freistinganna straumi svo ljúft því verði' að lúta þínum vilja, þitt ljós að sjá, þitt orð að nema' og skilja. 4 Með þinni hjálp ég skal því veginn vísa og verja það nær efans hrannir rísa svo barn mitt aldrei gleymi Guði sínum en gangi frjálst á náðarvegi þínum. 5 Sé trú mín veik, þá vertu hjá mér, Drottinn, mín von er grein af kærleik þínum sprottin og skrýðist laufi' í ljósi dýrðar þinnar sem lífsins tré í djúpi sálar minnar.


T Kristján A. Hjartarson – Sb. 1972
L Andreas P. Berggreen 1828 – PG 1878
Et kors det var det hårde, trange leje

Eldra númer 254
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction