Sálmabók

355. Lítið barn nú borið er

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Lítið barn nú borið er, ból sitt þekkir eigi. Láttu Guð þig leiða hér, lýsa þínum vegi. Guð sem nefnir nafnið þitt náðarhjartað opnar sitt; visku lífs að læra, ljúfa barnið kæra. 2 Lítið barn nú borið er, blessun okkur færir. Börnin eiga heima hér, himnaljós þau nærir. Þegn á jörðu, það ert þú, þínu nafni gegnir nú, barn sem ljósið bjarta ber í sínu hjarta.


T Py Bäckman 2004 – Halla Kjartansdóttir 2017
Lilla liv nu är du här
L Hans Kennemark, 2004
Lilla liv nu är du här

Uppáhalds sálmar

Under Construction