Sálmabók

354. Börnin okkar berum við til skírnar

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Börnin okkar berum við til skírnar, biðjum fyrir lífi þeirra' og vonum svo ævidagar allir megi verða undir verndarhendi Guðs og náð. :,: Helgist Jesú nafn og hjálparráð. :,: 2 Dafni þau í Drottins ást og friði, daga bjarta eigi fyrir höndum og fótum sínum finni rétta vegu, fagni uppskeru sem til var sáð. :,: Helgist Jesú nafn og hjálparráð. :,: 3 Börnin njóti blessunar og hlýju, blítt þeim vaggi heimsins ljúfi taktur með undri því sem almættinu fylgir, öllu sem í lífsins bók er skráð. :,: Helgist Jesú nafn og hjálparráð. :,:


T Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2009
L Sigurður Flosason 2009

Uppáhalds sálmar

Under Construction