Sálmabók

352. Undur lífsins okkur fögnuð vekur

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Undur lífsins okkur fögnuð vekur er að skírnarlaug þér barnið færum :,: við sem lífið eigum þér að þakka. :,: 2 Hjá þér verður lífið eilíft undur, alheimsdjúpin hvíla' í hendi þinni. :,: Öll þín börn í opinn faðm þú tekur. :,: 3 Endurnærð af orði' og kærleik þínum aftur fæðumst við til lífs í Kristi, :,: lífs sem játað skal í trú og trausti. :,: 4 Hulin framtíð ugg hjá okkur vekur en við leggjum barnið þér í hendur. :,: Öruggt skjól því skírnarnáðin veitir. :,: 5 Lífsins orð ei lúta tímans valdi, loforð þitt er skírnarsánum bundið. :,: Skírnarljósið skín þótt lífið slokkni. :,: 6 Skírn er gjöf sem orð ná ei að lýsa, auðlegð sem af náð er frá þér runnin. :,: Drottinn, lát þinn fögnuð hjörtun fylla. :,:


T Svein Ellingsen 1971 – Hjörtur Pálsson 2010 – Vb. 2013
Fylt av glede over livets under
L Egil Hovland 1976 – Vb. 1991
Fylt av glede over livets under

Eldra númer 894
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction