Sálmabók

351. Full af gleði yfir lífsins undri

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Full af gleði yfir lífsins undri með eitt lítið barn í vorum höndum :,: komum vér til þín sem gafst oss lífið. :,: 2 Full af kvíða fyrir huldri framtíð leggjum vér vort barn í þínar hendur. :,: Blessun skírnar ein fær veitt oss styrkinn. :,: 3 Full af undrun erum vér þér nærri! Þú sem geymir dýptir allra heima, :,: vitjar hinna smáu - tekur mót oss. :,: 4 Fyrir þig, af föðurelsku þinni fæðumst vér á ný til lífs í Kristi, :,: til hins sanna lífs í trú og trausti. :,: 5 Og við takmörk tímans áfram lifa fyrirheitin þín við skírnarfontinn, :,: skírnarljósið skín þá lífið slokknar. :,: 6 Meiri auð en orð vor ná að inna öðlumst vér í skírnargáfu þinni. :,: Drottinn, lát oss fyllast trúargleði. :,:


T Svein Ellingsen 1971 – Sigurjón Guðjónsson – Vb. 1991
Fylt av glede over livets under
L Egil Hovland 1976 – Vb. 1991
Fylt av glede over livets under

Eldra númer 585
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction