Sálmabók

350. Með fangið fullt af ást og trú

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Með fangið fullt af ást og trú við erum er okkar litla barn til skírnar berum, þar í skírnarbaði blessun Drottinn gefur, börn sín Kristur örmum vefur. 2 Við biðjum þig, ó, Kristur, kom í anda, þinn kærleik gef þú leiðsögn okkar handa. Þetta skírnarvatn úr lífsins lindum streymir, líkn Guðs náðar barnið geymir. 3 Þú minnir okkur á hve miklu stærra er mannlegt líf, það leitar áfram, hærra, upp til þín, ó, Guð, sem nýjum heimi heitir, hann er gjöf sem náð þín veitir. 4 Við skulum því til skírnar börnin bera, í blessun Guðs er öllum sælt að vera, líkt og vorregn elska Drottins drýpur niður, dögg á enni, líf og friður.


T Christiane Gammeltoft-­Hansen 2013 – Kristján Valur Ingólfsson 2019
Med favnen fuld af kærlighed
L Mads Granum 2013
Med favnen fuld af kærlighed

Uppáhalds sálmar

Under Construction