Sálmabók

349. Ég grundvöll á sem get ég treyst

Guðsþjónustan - Skírn

hymn notes
1 Ég grundvöll á sem get ég treyst því Guð minn lagt hann hefur af elsku' og náð sem ei fær breyst og óverðskuldað gefur. Að boði hans ég borinn var að bjartri laug og skírður þar af orði hans og anda. 2 Á höfuð mitt og hjarta var hans helgi kross þá ristur sem augljóst tákn þess að mig þar til eignar tæki Kristur því keypt hann hefði' á krossi mig og knýtt með þeirri fórn við sig og nú á ný mig fæddi. 3 Hve gott að eiga grundvöll þann þá guðlaus vantrú hræðir að sjálfur Drottinn verkið vann sem veikan endurfæðir. Ég, allslaust barn, gat ekki neitt en eilíft líf af náð var veitt, mitt nafn í lífsbók letrað.


T Bjarni Eyjólfsson – Sb. 1972
L Martin Luther 1529 – Klug 1533 – Sb. 1589
Es ist gewisslich an der Zeit

Eldra númer 255a
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction