Sálmabók

306. Vor Drottinn Kristur, dýrð sé þér

Guðsþjónustan - Samfélagið um Guðs borð

hymn notes
1 Vor Drottinn Kristur, dýrð sé þér, dásöm og blessuð náð þín er. Vor hugur, sál og tunga tignar þig. Heilagur, heilagur, heilagur ert þú hæst í hæð. 2 Þig lofar allra engla kór, uppheima sveitin björt og stór, þig lofa kerúbar og serafar. Heilagur, heilagur, heilagur ert þú hæst í hæð. 3 Þinn lýður, Kristur, lofar þig, þín leysta brúður gleður sig í fylgd með þér mót fegri jörð og sól. Heilagur, heilagur, heilagur ert þú hæst í hæð.


T Latn. sálmur – Sb. 1589 – Sigurbjörn Einarsson 1966 – Sb. 1972
Þér sé lof og dýrð, Jesu Krist
L 15. öld – Mortensen 1529 – Gr. 1594 / R Róbert A. Ottósson, 1967
Tibi laus salus sit Christe

Eldra númer 238
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction