Sálmabók

304. Hér er vítt og hátt

Guðsþjónustan - Samfélagið um Guðs borð

hymn notes
1 Hér er vítt og hátt. Hér er Guðs borð, í himinljóma angar döggvuð storð, úr tómi' er hrópað, trúin veitir svar. :,: Guð er hér og hefur búið borð. :,: 2 Hverfa skil og mærin eru máð og metta tímann andi Guðs og náð og allt sem var og verður er í dag. :,: Guð er hér og hefur búið borð. :,: 3 Það englar varla vita eða sjá hve víð og djúp Guðs miskunn reynast má er sektarþjáðum manni frið hún fær. :,: Guð er hér og hefur búið borð. :,: 4 Feng sinn, góss og gæði enginn ver og greipar kvíðans missa tak sitt hér því enginn beyg af öðrum hefur meir. :,: Guð er hér og hefur búið borð. :,: 5 Návist, ljós og vín og brotið brauð er boðið öllum, veitt af kærleiksauð, í hversdagsmáltíð alnægð Drottins dýr. :,: Guð er hér og hefur búið borð. :,:


T Robert J. Stamps 1971 – Anders Frostenson 1974 – Jón Ragnarsson 2009 – Vb. 2013
In Christ there is a table set for all / Gud är en av oss vid detta bord
L Robert J. Stamps 1971 – Vb. 2013
CENÉDIUS / In Christ There Is a Table Set for All

Eldra númer 890
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction