Sálmabók

302. Sú náð, það líf, sem eilíft er

Guðsþjónustan - Samfélagið um Guðs borð

hymn notes
1 Sú náð, það líf sem eilíft er til allra, Jesú minn, frá þér við blessað borð þitt streymir. Þín sæla návist seður þar þá sál er þyrst og hungruð var. Þín elskan engum gleymir. 2 Þar er oss borin gjöfin góð, þitt guðdómlega hold og blóð, og sæll er sá þess neytir með hjartans þrá og hreinni trú því honum æðstri blessun þú á himnum með þér heitir.


T Björn Halldórsson – Sb. 1886
L Þýskt lag um 1504 – Nürnberg 1534 – Sb. 1589
„Kommt her zu mir” spricht Gottes Sohn

Eldra númer 231
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction