Sálmabók

301b. Vér tökum marga með oss

Guðsþjónustan - Samfélagið um Guðs borð

hymn notes
1 Vér tökum marga með oss að máltíð Drottins hér því allt sem Guð oss gefur þeim gefið líka er. Þitt borð er öllum búið, þín börn þú kallar heim, í helgri skírn þú hefur þitt hjarta opnað þeim. 2 Þá alla sem vér söknum og sjáum ekki hér og virðast frá þér farnir vér felum einum þér. Og alla sem vér særðum og sviptum von og trú með kulda, kærleiksleysi, ó, Kristur, blessa þú. 3 Vér minnumst þeirra mörgu sem manna dómar þjá og þeirra sem vér svikum, ó, sýkna oss og þá. Og veit oss náð og vektu þitt veika, trega lið svo heimur hjá oss finni þitt hlýja ljós, þinn frið.


T Svein Ellingsen 1977 – Sigurbjörn Einarsson 1984 – Vb. 2013
Vi bærer mange med oss
L Sænskt þjóðlag

Eldra númer 887
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction