Sálmabók

3. Slá þú hjartans hörpustrengi

Kirkjuár - Aðventa og jól

hymn notes
1 Slá þú hjartans hörpustrengi, hrær hvern streng sem ómað fær. Hljómi skært og hljómi lengi hósíanna nær og fjær. Hvert þitt innsta æðarslag ómi' af gleði þennan dag. Konungurinn konunganna kemur nú til sinna manna. 2 Ríki hans um allar álfur ómælanda geimsins nær. Hásætið er himinn sjálfur, hallarprýði sólin skær, fótskör hans hin fagra jörð, fylgdin hans er englahjörð. Skrúða ljóssins skrýddur er hann, skíra lífsins krónu ber hann. 3 Hann þótt æðst í hátign ljómi hógvær kemur alls staðar. Hjarta þitt að helgidómi hann vill gjöra' og búa þar. Opna glaður hjartans hús, hýs hinn tigna gestinn fús. Getur nokkuð glatt þig fremur: Guð þinn sjálfur til þín kemur? 4 Líknarár hann enn þá gefur, ár sem háð ei breyting er, ár er sumar ávallt hefur ávöxt lífs að færa þér. Vetur, sumar, vor og haust votti þakkir endalaust konunginum konunganna, krýndum vegsemd. Hósíanna.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Johann Schop 1642 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Werde munter mein Gemüte

Eldra númer 57
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction