Sálmabók

294. Drottinn Guð af himni háum

Guðsþjónustan - Bænir og bænasvör

hymn notes
1 Drottinn Guð af himni háum hefur gát á stórum, smáum, um þau stendur ætíð vörð. Til þín, faðir, fyrst vér leitum, frelsa oss sem á þig heitum. :,: Helgist nafn þitt hér á jörð. :,: 2 Ríki þitt um álfur allar eflir þú og saman kallar öll þín börn í einni trú. Þinn á jörðu verði vilji. Veit að allur heimur skilji :,: vegsögn þá sem veitir þú. :,: 3 Daglegt brauð oss Drottinn gefur, daga' og nætur oss umvefur að vér líðum engan skort. Fyrirgef oss, faðir góði, frelsa oss af voðans flóði, :,: einn þú þekkir eðli vort. :,: 4 Heyr þú bænir barna þinna, blessun lát þau ætíð finna, yfir þeim um aldir vak. Þú sem ríkir öllu ofar, eilífð himna nafn þitt lofar :,: eins og minnsta andartak. :,:


T Johan O. Wallin 1809, 1814 – Kristján Valur Ingólfsson 1995, 2002 – Sb. 1997
Herre, du som från det höga
L Wolfgang Amadeus Mozart 1791 – Sb. 1997
Lasst uns mit geschlungnen Händen (Land der Berge, Land am Strome)

Eldra númer 731
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction