Sálmabók

284. Vér játum trú á góðan Guð

Guðsþjónustan - Trúarjátning

hymn notes
Vér játum trú á góðan Guð. Einn sá faðir almátt hefur, frá eilífð heims og himna Guð. Allt er hans og allt hann gefur. Soninn, ljóma sinnar mildi, sekum oss hann gefa vildi, alla náð og ást síns hjarta, anda heilags ljósið bjarta og ríki það sem :,: eilíft er :,: í upprisunnar dýrð hjá sér.


T Sigurbjörn Einarsson 1966 – Sb. 1972
L 15. öld – Wittenberg 1524 – Gr. 1594
Wir glauben all an einen Gott

Eldra númer 226
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction