Sálmabók

277. Heilagi Guð, á himni og jörð

Guðsþjónustan - Lofgjörðarvers

hymn notes
1 Heilagi Guð, á himni' og jörð hljómi þér lof og þakkargjörð! Blessað sé vald og viska þín! Vegsemd þér kveði tunga mín. 2 Skaparans dýrð og dulin ráð dvelja minn hug í lengd og bráð; máttarverk Drottins dásamleg daglega skoða' og undrast ég. 3 Með glöðum söng og hörpuhljóm hylli ég líf og skapadóm. Fagnandi hjörtu' og hvelin víð heiðri þig, Drottinn, ár og síð!


T Cornelius Becker 1602 – Helgi Hálfdanarson – Vb. 1991
Lobt Gott in seinem Heiligtum
L Heinrich Schütz 1628 – Vb. 1991
Lobt Gott in seinem Heiligtum

Eldra númer 538
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction