Sálmabók

276. Guð, sem gefur lífið

Guðsþjónustan - Lofgjörðarvers

hymn notes
1 Guð, sem gefur lífið, ég gleðst og tilbið nafn þitt, öll máttarverk þín vitna’ um þig. Drottinn, dýrð sé þér. 2 Kristur, þú sem kemur og kallar mig til fylgdar, af hjarta þér ég þjóna vil. Drottinn, dýrð sé þér. 3 Andinn helgi, hreini, sem hjálpar mér að trúa, þú býrð í mér og blessar mig. Drottinn, dýrð sé þér.


T Ólafur Jóhannsson 2001 – Vb. 2013
L Frá Argentínu – Vb. 2013
ARGENTINE SANTO

Eldra númer 830
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction