Sálmabók

275. Ljós ert þú lýði

Guðsþjónustan - Lofgjörðarvers

hymn notes
Ljós ert þú lýði lífsins í stríði, Jesús, heimsins hjálparvon. Frá þér vér fáum frið er vér þráum, þín er dýrðin, Drottins son. Höndin þín styður hvern sem þig biður hjálpar í vanda helgum með anda heimur þó svíki. Hallelúja. Sé þér að geði sorg vor og gleði, kenn oss að skilja, Kristur, þinn vilja, komi þitt ríki. Hallelúja.


T Cyriakus Schneegass 1598 – Guðmundur Sigurðsson – Vb. 1991
In dir ist Freude
L Giovanni G. Gastoldi 1591 – Erfurt 1598 – Vb. 1991
In dir ist Freude

Eldra númer 540
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction