Sálmabók

274. Almáttugur Guð allra stétta

Guðsþjónustan - Lofgjörðarvers

hymn notes
1 Almáttugur Guð allra stétta, yfirbjóðandi engla og þjóða, ei þurfandi staða né stunda, staði haldandi´ í kyrrleiks valdi, senn verandi úti og inni, uppi og niðri og þar í miðju, lof sé þér um aldur og ævi, eining sönn í þrennum greinum. 2 Máría, ert þú móðir dýrust, Máría, lifir þú sæmd í hárri. Máría, ert þú af miskunn kærust, Máría, létt þú syndafári. Máría, lít þú mein þau er vóru, Máría, lít þú klökk á tárin, Máría, græð þú mein hin stóru, Máría, ber þú smyrsl í sárin. 3 Fyrir Máríu faðminn dýra, fyrir Máríu grátinn sára, lát mig þinnar lausnar njóta, lifandi Guð með föður og anda. Ævinlega með lyftum lófum, lof ræðandi’, á kné sín bæði, skepnan öll er skyld að falla, skapari minn, fyrir ásjón þinni.


T Eysteinn Ásgrímsson um 1350 – Sb. 1972
Lilja
L Íslenskt þjóðlag – ÍÞ 1906 – Vb. 1976
Liljulag / Almáttugur Guð allra stétta

Eldra númer 40
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction