Sálmabók

258. Hjá þér er lífsins lindin

Guðsþjónustan - Inngönguvers úr Biblíunni

hymn notes
Hjá þér er lífsins lindin, í þínu ljósi sé ég ljós. 1 Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín. Réttlæti þitt er sem hæstu fjöll, dómar þínir sem reginhaf. Hjá þér er lífsins lindin ... 2 Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn. Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó, Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna. Þau seðjast af nægtum húss þíns og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðssemda þinna. Hjá þér er lífsins lindin ... 3 Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen. Hjá þér er lífsins lindin ...


T Sálm. 36.6-9
Hos deg er livets kilde
L Trond H.F. Kverno 1974
Hos deg er livets kilde

Uppáhalds sálmar

Under Construction