Sálmabók

232. Himnafaðir, hér

Guðsþjónustan - Messuupphaf og messulok

hymn notes
1 Himnafaðir, hér hittumst glaðir vér, hefjum söng með hlýjum barnarómi. Allt er yndi valt, oft er dimmt og kalt, glatt og bjart í Herrans helgidómi. 2 Hér er búið borð, boðað lífsins orð, það sem mettar sorg og hel og hungur, stillir víl og vein, vekur dauða grein, svo hver fauskur verður aftur ungur. 3 Guðsson, Kristur kær, kom og ver oss nær, þú sem bauðst að biðja' í þínu nafni, brjót þú enn þitt brauð, blessa skort og auð, svo í Guði gróða hver einn safni. 4 Lát þitt lífsins orð, láttu, Guð, þitt borð seðja, betra, blessa hvern hér inni. Hver sem hefur hér hjartað gefið þér bjartari' ávallt bæ sinn heima finni.


T Bernhard S. Ingemann 1837 – Matthías Jochumsson – Vb. 1912
L Christoph E.F. Weyse 1837 – BÞ 1912
Gud ske tak og lov

Eldra númer 218
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction