Sálmabók

229. Opnið kirkjur allar

Guðsþjónustan - Messuupphaf og messulok

hymn notes
1 Opnið kirkjur allar! Opnið huga minn! Kristur til mín kallar: Kom þú hingað inn! Hér í helgidómi hans ég návist finn. Breytir brag og hljómi blíður lausnarinn. 2 Opnið kirkjur allar! Opnið nýja sýn! Þegar Kristur kallar kvíðinn óðar dvín. Lýkur lífsins flótta lausnin frelsarans. Eyðir hjartans ótta örugg leiðsögn hans. 3 Opnið kirkjur allar! Opnið huga minn! Kristur til mín kallar: Kom þú hingað inn! Kom þú, kvíðans maður, kirkjan griðland er. Far svo frjáls og glaður. Friður sé með þér.


T Gylfi Gröndal 1987 – Vb. 1991
L Trond H.F. Kverno 1965 – Vb. 1991
Gud er i sitt tempel

Eldra númer 539
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction