Sálmabók

227b. Guð faðir, himnum hærri

Guðsþjónustan - Messuupphaf og messulok

hymn notes
1 Guð faðir, himnum hærri ert hjarta mínu nærri með ljós á lífs míns vegi og líkn á nótt sem degi. 2 Þú mætir mér að nýju í morgunskini hlýju og heilsar huga mínum með helgum anda þínum. 3 Og bænarlogann bjarta hann ber að köldu hjarta og neista náðar þinnar flýr nóttin sálar minnar. 4 Í lífsins tæru lindum þú laugar mig af syndum og nærir sál og sinni með sælli návist þinni. 5 Lát orð þitt veg mér vísa og vilja mínum lýsa, tak dagsins verk og vanda á vald þíns góða anda. 6 Þér, eilíf þrenning eina, skal ást og trúin hreina með gleði þakkir gjalda, vor Guð, um aldir alda.


T Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1997
L Matthías V. Baldursson 2011

Eldra númer 701
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction