Sálmabók

224. Sunnudagur Drottins er

Guðsþjónustan - Messuupphaf og messulok

hymn notes
1 Sunnudagur Drottins er dagur lífs til hvíldar mönnum, lífsins orð hann blessuð ber, boðin Jesú vinum sönnum. Drottins kirkja' um veröld víða vill þann dag með lofsöng prýða. 2 Yfir vatna ógnageim orð Guðs leið á sunnudegi: „Verði ljós!“ – og vítt um heim varð þá bjart sem elding fleygi fram úr myrkra heljar hjúpi, hrærast tók þá líf í djúpi. 3 Velti stórum steini' af gröf sterk Guðs hönd á sunnudegi, lýsti yfir lönd og höf ljósið Guðs á sigurvegi. Sunnudags í roða rauðum reis Guðs sonur upp frá dauðum. 4 Andi Guðs með eilíft ljós ofan kom á sunnudegi, gróa tók úr grjóti rós, græðast sár á þrautavegi. Tungan losnar, lofgjörð flytur lífsins Drottni' á himni' er situr. 5 Kom þú, dagur Drottins kær, dauðanum í líf að breyta, hjörtun opna' og endurnær alla sem til kirkju leita, eilífur og undrafagur uns oss ljómar sunnudagur.


T Nikolaj F.S. Grundtvig 1837, 1853 – Friðrik Friðriksson, 1898 – Vb. 1912
Søndag er vor Herres dag
L Johann R. Ahle 1664 – Sb. 1801
Liebster Jesu, wir sind hier

Eldra númer 217
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction