Sálmabók

223. Gakk inn í Herrans helgidóm

Guðsþjónustan - Messuupphaf og messulok

hymn notes
1 Gakk inn í Herrans helgidóm, þú hjartkær Drottins lýður, og lofa Guð með glöðum róm er gleðihnoss þér býður. Um löndin öll Guðs orðin snjöll af ótal vörum hljómi í Herrans helgidómi. 2 Sinn einkason oss Guð vor gaf svo gleði hans vér nytum, svo frelsi þar vér fengjum af og fyrirgefning hlytum. Því gleðjumst vér af hjarta hér og hrópum allir glaðir: Ó, abba, elsku faðir. 3 Hans blessað orð er boðað nú um byggðir heimsins víða, það vekur kærleik, von og trú og veitir huggun blíða. Hvern andardrátt, hvern æðarslátt þá ástgjöf látum róma og hallelúja hljóma. 4 Ó, lofum Drottin, Drottins hjörð, hans dýrð og gæsku játum, hans náðarorð um alla jörð vér ætíð vera látum vort ljós á leið og líkn í neyð og lækning heims í þrautum og huggun hels á brautum.


T Burkard Waldis 1553 – Gr. 1594 – Valdimar Briem – Sb. 1886
Lobt Gott in seinem Heiligtum
L Severus Gastorius 1675 – JH 1891
Was Gott tut, das ist wohlgetan

Eldra númer 214a
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction