Sálmabók

221. Mín sál, þinn söngur hljómi

Guðsþjónustan - Messuupphaf og messulok

hymn notes
1 Mín sál, þinn söngur hljómi, þinn söng lát stíga hátt frá Herrans helgidómi um Herrans tign og mátt. Hann skrúði ljóss er skrýddur og skýin vagn er hans og himinn hár og prýddur er höllin skaparans. 2 Hann sól oss lætur lýsa með lífsins yl og skart og mánann milda rísa svo myrkrið verður bjart. Um loft og lönd, í höfum býr lífið ótalfalt, allt mettast Guðs af gjöfum, á Guð sinn vonar allt. 3 Ó, Drottinn dýrðarinnar, þín dásöm eru verk og vottur visku þinnar. Þín veldishönd er sterk og gjafmild, full af gæðum, ó, Guð, er þessi jörð. Lof sé þér, Herra' á hæðum, og hjartans þakkargjörð.


T Stefán Thorarensen – Sb. 1886
L Melchior Teschner 1613 – Ssb. 1936
Valet will ich dir geben

Eldra númer 213a
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction