Sálmabók

209. Ó, blessuð sýn

Kirkjuár - Allra heilagra messa

hymn notes
1 Ó, blessuð sýn er Herrans hjörð til himins komin er frá öllum þjóðum, allri jörð, sá endurleysti her. 2 Hve blessuð sýn er safnast heim hans sendimenn af storð og skarinn mikli með af þeim er mátu þeirra orð. 3 Ó, blessuð sýn er sigurljóð í söng og þakkargjörð þar duna' um himins dýrðarslóð frá Drottins sælu hjörð. 4 Hve mikil, Guð, þín miskunn er sem milt mig laðar heim. Ó, lát mig standa' í helgra her á hjálpardegi þeim.


T Wilhelm A. Wexels 1846 – Friðrik Friðriksson, 1939 – Sb. 1972
Å tenk når engang samles skal
L William Tans'ur 1734 – Sb. 1997
BANGOR (Tansur)

Eldra númer 307
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Opb. 21.24–26

Uppáhalds sálmar

Under Construction