Sálmabók

207. Þinn friður mun oss fylgja

Kirkjuár - Allra heilagra messa

hymn notes
1 Þinn friður mun oss fylgja, sem fyrr þín miskunn er, þá stormur um oss æðir er öruggt skjól hjá þér. Á tómsins langa tíma, á tregans þungu stund þú ert vort athvarf, Drottinn, þótt önnur lokist sund. 2 Æ vertu hjá oss, Herra, þá hljóðnar stormsins raust og þegar vina vitjum sem vefur grafarnaust. Vér biðjum blessun þeirra æ búa megi' oss hjá, í göfgu hjarta geyma þá gæsku' er barst þeim frá. 3 Brátt hverfum vér úr heimi og hvert vort spor er gleymt en náð þín, Guð, er nærri og nafn vort hjá þér geymt. Það líf sem deyr í duftið er deigla' í þinni hönd. Í fullu trausti, faðir, þér felum líf og önd.


T Svein Ellingsen 1958, 1969 – Sigurjón Guðjónsson 1971 – Vb. 1991
Din fred skal aldrig vike
L Egil Hovland 1974 – Vb. 1991
Din fred skal aldrig vike

Eldra númer 581
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Jóh. 14.27

Uppáhalds sálmar

Under Construction