Sálmabók

205. Allt Kristur af kærleika virðir

Kirkjuár - Allra heilagra messa

hymn notes
1 Allt Kristur af kærleika virðir og kennir um gjörvalla jörð, er börnunum brosandi hirðir og blessar með orði og gjörð. 2 Á fjallinu styrkur mun standa og styðja á hjálpræðisfund. Hann fylgir þeim fátæku' í anda á fegurstu sælunnar grund. 3 Til fólksins af fögnuði mælir og flytur þau sælunnar boð að brátt verði syrgjendur sælir og sveipaðir huggunar voð. Fagnið og gleðjist í Guði sem gefur hin himnesku laun. 4 Og sæl eru hógvær í hjarta sem hljóta við vel unnið starf þá jörð sem að blessun Guðs bjarta mun birta sem himneskan arf. 5 Þau þyrstir að sönnu og svengir sem sannleik og réttlæti þrá, fá saðningu' er sálina tengir við sæluna Guðs ríki frá. 6 Guð miðlar þeim miskunn sem breyta af mildi við systkini sín og opnar þeim leið sem að leita í ljósið sem heiminum skín. Fagnið og gleðjist í Guði sem gefur hin himnesku laun. 7 Já, öll sem að hrein eru' í hjarta þá himnesku signingu fá: Er ljósið mun birtast hið bjarta í blessun þau Guð munu sjá. 8 Og sæl þau er friðarboð færa og flytja í lengd og í bráð. Hann hvert þeirra barnið sitt kæra mun kalla af elsku og náð. 9 Um eilífð mun sælan þau sefa er sætt hafa ofsókn og þjást og lausnarinn líkna og gefa í lífinu kærleik og ást. Fagnið og gleðjist í Guði sem gefur hin himnesku laun.


T Bragi J. Ingibergsson 2018
L Helga Þórdís Guðmundsdóttir 2018

Biblíutilvísun Matt. 5.1–12

Uppáhalds sálmar

Under Construction